Miðvikudagurinn 26. janúar n.k.
Kl. 9:00
-
Fundarhlekkur verður sendur á póstlista fyrir fundinn.
-
Á morgunfundi þann 26. janúar kl. 9:00 sem haldinn verður á Teams, mun Bjarni Benediktsson, fjármála og efnahagsráðherra ávarpa fund IcelandSIF og kynna sjálfbæran fjármögnunarramma ríkisins, ásamt Esther Finnbogadóttur, sérfræðing á skrifstofu stjórnunar og umbóta. Sjálfbær fjármögnunarrammi íslenska ríkisins hlaut nýverið dökkgræna einkunn hjá CICERO, sem er alþjóðlega viðurkenndur og sjálfstæður vottunaraðili.
-
Einnig mun Jasper Cox, greinandi á sviði fjárfestinga hjá PRI kynna aðferðafræði fjárfesta við mat á ríkisverðbréfum og áherslur á UFS þætti tengdum ríkisverðbréfum sem ýta undir breytingar í átt að sjálfbærri uppbyggingu.
-
Kær kveðja,
Stjórn IcelandSIF
Hlekkur á viðburðinn verður sendur í tölvupósti á póstlista fyrir fundinn
kl. 12:00 21/01/2022
kl. 09:00 26/01/2022