Stofnaðilar IcelandSIF eru fjármálafyrirtæki, lífeyrissjóðir og tryggingafélög sem fjárfesta fyrir eigin reikning eða í umboði þriðja aðila með starfsemi á Íslandi og styðja tilgang samtakanna. Stofnaðilar voru 23 talsins og voru þar ellefu lífeyrissjóðir, fjórir bankar, þrjú tryggingafélög, fjögur rekstrarfélög verðbréfasjóða og eitt eignastýringarfyrirtæki. Samtökin hafa notið mikillar velvildar og stuðnings frá stofnun, en stöðug fjölgun félagsmanna hefur verið síðastliðin ár. Hefur fjöldi aðildarfélaga meira en tvöfaldast frá stofnun.