IcelandSIF minnir á næsta viðburð samtakanna þann 13. janúar 2025

8/01/2025

IcelandSIF minnir á IMCA kynningarfund í samstarfi við Utanríkisráðuneytið og Íslandsstofu þann 13. janúar kl. 15:00 – 16:30 í húsnæði Landsbankans við Reykjastræti 6 í Reykjavík.

Nánari upplýsingar um viðburðinn og skráningu er hægt að nálgast hér: Ný tækifæri í grænum fjárfestingum - blendingsfjármögnun í gegnum IMCA

Í kjölfar fundarins gefst tækifæri til tengslamyndunar með léttum veitingum og drykkjum.

Dagskrá fundarins:

Opnun fundarins: Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins.

Dewi Dylander og Jesper H. Andersen fræa IMCA munu vera með eftirfarandi erindi og kynna IMCA samtökin ásamt því að svara spurningum. Athugið að viðburðurinn fer fram á ensku.

  1. The IMCA concept – de-risking private investments with development finance
    a) Innsýn inn í blendingsfjármögnum til að hraða grænum fjárfestingum í þróunarríkjum

  2. Asset Owners Advisory Board
    b) Samsetning á ráðgjafaráði IMCA

  3. Investment Pipelines – how are they created?
    c) Hvernig eru fjárfestingaverkefni metin og valin sem hluti af IMCA ferlinu


Við bendum á að áhugasömum aðilum gefst einnig færi á að bóka viðtöl við Dewi Dylander og Jesper H. Andersen frá IMCA fyrir hádegi 14. janúar. Vinsamlegast hafið samband við svanhvit@mfa.is til þess að bóka viðtal.